Það er alger vitleysa að reykja....

Ég byrjaði að reykja sautján ára gamall. Ég var svo óheppin að eiga vini sem að spilltu mér. Þetta voru Albert heitinn bróðir minn og Heimir, sonur Jónasar kokks í Skagaver. Við félagarnir rúntuðum um á Lödu, E-3098 og pikkuðum upp dömur í massa-vís ( og erum svo heppnir að sitja ennþá uppi með þær).  Við keyrðum um Akranes og nágrenni og reyktum hér og þar og "spray-uðum" síðan ilmvatni um allan bíl, foreldrar okkar grunlausir, að okkar mati!!  Ladan var að gera svakalega góða hluti. Það var þó mitt mesta böl að byrja á þessum andskota og gott að vera laus við þetta í dag.

Jón Gunnar sonur minn er mikill spekingur. Við vorum að ræða þessa hluti um daginn og það var eitthvað á þessa leið... 

JG: “Pabbi, af hverju er óhollt að reykja”

Pabbi: “Af því að maður getur orðið svo veikur að maður getur dáið ef maður reykir.”

JG: “En af hverju er þá verið að selja sígarettur?”

Pabbi: “Það er af því að þeir sem búa til sígarettur eru að reyna að plata fólk til að reykja, til að græða peninga”

JG: “ En af hverju kemur ekki bara löggan og tekur þá í fangelsi?

Pabbi: “Það er af því að það er ekki bannað að selja sígarettur.”

JG: “Þannig að þeir eru ekki bara að reyna að drepa fólk heldur líka stela af þeim peningunum!! ....

Svona er þetta nú einfalt!!!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Jæja svo þú ert bara að  ljóstra upp gömlu leyndarmáli. Aldrei hefði ég trúað þessu upp á litlu englana mína jafnvel þó einhver hefði sagt mér það og ég trúi þessu ekki enn. Vil bara láta alla vita að Haddi er örugglega bara að djóka eins og þessir þrír  drengir gerðu ansi oft .

mamma Rósa (IP-tala skráð) 10.1.2007 kl. 01:45

2 identicon

   Sem ég segji hann Jón Gunnar leynir á sér, svona mann þarf til að stinga á kýlum samfélagssins og upplýsa lýðinn í framtíðinni! "Jón Gunnar for president"!!!!   Maren

Maren (IP-tala skráð) 10.1.2007 kl. 08:49

3 identicon

Auðvitað er það rétt hjá Rósu að þette var bara djók með reykingarnar,við reyktum aldrei!!!!!En LADAN(E3099)laðaði að sér margar flottar kjellingar það er rétt, JAZZ ilmurinn hefur aldrei klikkað hvorki í LÖDU eða á kje,, eða konur.

Heimir (IP-tala skráð) 12.1.2007 kl. 23:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hafsteinn

Höfundur

Hafsteinn Gunnarsson
Hafsteinn Gunnarsson

Færsluflokkar

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband