Færsluflokkur: Íþróttir

Áfram Skagamenn

Ég vil byrja á að taka fram að ég stend heilshugar að baki minna manna í Skagaliðinu, bæði stjórnar, leikmanna/þjálfara og hlakka mikið til að koma á Skagann í sumar til að styðja mína menn.

En það er algert lágmark að við teflum fram löglegu liði í mótum á vegum KSÍ. Ef rétt er,  þá tefldum við fram ólöglegum leikmanni gegn Fram í Lengjubikarnum fyrir skömmu. Þetta ekki viðunandi, fyrir jafn stóran klúbb og ÍA er og á einfaldlega ekki að gerast.


Líkamsræktin

Við hjónin erum farin að stunda hjólreiðar. Erum búin að fara eina 50 km þessa vikuna - Það held ég að rassarnir verði stinnir og flottir með þessu áframhaldi!!

Það er nú samt gaman af þessari líkamsækt. Þetta er einhvern vegin alltaf sama sagan. Eftir jólin byrjar maður að koma sér í form og stendur sig svona þokkalega vel fram eftir ári. Síðan fer að halla undan fæti í kringum páskana og á sumrin er þetta einhvern vegin ekki að gera sig. Þegar fer að hausta verður maður nú að drífa sig aftur af stað, ekki hægt að liggja í eymd og volæði. Það gengur mjög vel fram eftir haustinu en þegar líða fer að jólum fjarar þetta út. Síðan hefst hringurinn aftur.

Þetta dugar þó til að halda sér í horfinu, þó ekki sé það meira. Það er nú betra að vera alltaf að reyna en að gera ekki neitt.  Gangi ykkur vel í ræktinni.

Knattspyrnan á Skaganum

Knattspyrnan hefur verið helsta merki okkar Skagamanna, allt frá því Gullaldarliðið kom okkur á kortið. Það er ekki ósanngjarnt að segja að knattspyrnan eigi stóran þátt í að móta það samfélag sem hefur þróast á Akranesi í gegnum árin. 

Ég hef auðvitað fylgst vel með því sem er að gerast í boltanum, þrátt fyrir að vera langt í burtu. Ég lýsi yfir ánægju minni með stöðu mála í dag. Ný stjórn hefur tekið til starfa, mjög öflugir aðilar sem eiga eftir að skila góðu starfi. Þessir menn munu ekki láta hagsmuni sína ganga fram yfir hagsmuni félagsins. Sjórnun knattspyrnufélags felst ekki eingöngu í því að ná árangri á vellinum. 

Nú hefur Gaui tekið við liðinu og ljóst að það mun verða Skagaliðinu til framdráttar, enda Gaui sigursælasti þjálfari Íslands frá upphafi, unnið stóra titla með þremur félögum, það geta ekki margir státað af slíkum árangri. Við Gaui unnum saman í boltanum fyrir nokkrum árum, síðast 1996 - 11 ár síðan ...tíminn líður hratt. Við Gaui erum góðir vinir en það skiptust á skin og skúrir í þá daga. Guðjón er rétti maðurinn til að byggja upp nýtt lið. Það mun taka tíma og hann verður Gaui að fá. 

Skipan þjálfaramála hjá yngri flokkunum er einnig til fyrirmyndar. Doddi stýrir því starfi og ef hann nær að koma örlítið af þeim metnaði og krafti sem hann býr yfir til skila þá þurfum við ekki að kvíða því að fá ekki góða leikmenn á næstu árum. Svo er Lúlli bróðir auðvitað að þjálfa og ekki hægt að fá samviskusamari mann í starfið. 

Það væri gaman að vera lítill gutti á Skaganum núna. Knattspyrnuhúsið sem nýlega var tekið í notkun er draumur í dós fyrir okkur fótboltaáhugamenn. Fyrr á árum gátum við æft á Langasandi og stóðum þar öðrum félögum framar hvað varðar aðstöðu til æfinga yfir vetrartíman og á vorin en nú var svo komið að við vorum að dragast aftur úr. Úr því hefur verið bætt svo um munar. 

Það er ekki langt síðan leikin var bikarúrlitaleikur á klakabundnum Melavelli, í desember. Þarna töpuðum við Skagamenn 3-2 fyrir Akureyringum en mörk okkar Skagamanna skoruðu Teitur og Matti. Í þessum leik tóku þátt menn sem enn eru að starfa við knattspyrnuna, þjálfarar í efstu deild. Frumkvöðlar knattspyrnunnar á Íslandi eiga heiður skilið fyrir þá vinnu sem þeir hafa skilað til að bæta aðstöðu knattspyrnumanna í gegnum árin og óhætt að segja uppbygging íþróttarinnar sé þeim mönnum til mikils sóma.

Hlakka til að koma heim í sumar og fylgjast með.


Um bloggið

Hafsteinn

Höfundur

Hafsteinn Gunnarsson
Hafsteinn Gunnarsson

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.5.): 10
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 184

Annað

  • Innlit í dag: 10
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 10
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband